Rauntímayfirsýn
Sjáðu stöðu tækisins og næsta skammt á einfaldan hátt.
Dosell er sjálfvirkur lyfjaskammtari sem vinnur með lyfjapokunum þínum. Þegar komið er að lyfjatöku minnir Dosell þig á með ljósi og hljóði og afhendir réttan lyfjapoka.
Ef skammtur er ekki tekinn er hægt að senda tilkynningu til aðstandanda.

Dosell er fyllt með lyfjapokum sem eru merktir með dagsetningu og tíma.
Dosell minnir notendur á lyfjatöku á réttum tíma með hljóð- og ljósviðvörun.
Lyfjapokinn er skorinn og afhentur sjálfkrafa með innbyggðu myndavélareftirliti.
Aðstandendur fá tilkynningar ef lyf eru ekki tekin.
Sem einstaklingur notar þú fyrst og fremst appið til að fylgjast með lyfjatöku, fá áminningar og sjá stöðu Dosell í rauntíma.
Sjáðu stöðu tækisins og næsta skammt á einfaldan hátt.
Fáðu tilkynningar þegar kominn er tími á lyfjatöku eða ef lyfjaskammt er sleppt.
Skoðaðu sögu yfir lyfjatöku og haltu utan um reglusemi til lengri tíma.
Tengdu appið við Dosell á örfáum mínútum og byrjaðu strax.

Ræddu við starfsfólk Lyfju um Dosell og hvort lausnin henti þér eða þínum nánustu.
Lyfin þín eru pökkuð í lyfjapoka með réttum skammti, dagsetningu og tíma.
Dosell er leigður hjá Lyfju og þú færð leiðbeiningar um uppsetningu og notkun.
Settu lyfjaskömmtunarrúlluna í tækið og Dosell sér um að minna á og afhenda réttan lyfjapoka á réttum tíma.
Dosell þarf í grunninn aðeins rafmagn til að virka. Einnig þarf að sækja snjallsímaforrit sem virkar sem fjarstýring. Í Dosell er innbyggt SIM-kort og öll gagnanotkun er innifalin í mánaðargjaldi.
Dosell getur virkað án rafmagns í allt að 48 klukkustundir.
Dosell er hagkvæm lausn í sínum flokki. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um verð og útfærslur.
Það tekur aðeins 3–5 mínútur að setja inn nýja skammtarúllu. Leiðbeiningar í bæði myndbandi og texta eru aðgengilegar í notendavænu appi.
Dosell sendir viðvörun ef lyfjatöku er sleppt, ef rafmagn fer af, ef tækið er slökkt eða ef það missir samband við skýið af öðrum ástæðum. Að baki Dosell er öflugt viðvörunarkerfi sem gerir kleift að stilla tímasetningar og forgangsröðun viðvarana.
Hefur þú spurningar, athugasemdir eða áhuga á að leigja Dosell?
Vinsamlegast fylltu út eyðublaðið hér að neðan og við munum hafa samband við þig eins fljótt og auðið er.