Meira öryggi og hugarró við daglega lyfjatöku

Lyfjaskammtari sem man eftir lyfjunum með þér

Dosell er sjálfvirkur lyfjaskammtari sem vinnur með lyfjapokunum þínum. Þegar komið er að lyfjatöku minnir Dosell þig á með ljósi og hljóði og afhendir réttan lyfjapoka.

Ef skammtur er ekki tekinn er hægt að senda tilkynningu til aðstandanda.

Hvernig Dosell virkar

1

Lyfjaskammtar settir inn

Dosell er fyllt með lyfjapokum sem eru merktir með dagsetningu og tíma.

2

Sjálfvirk áminning

Dosell minnir notendur á lyfjatöku á réttum tíma með hljóð- og ljósviðvörun.

3

Nákvæm afhending

Lyfjapokinn er skorinn og afhentur sjálfkrafa með innbyggðu myndavélareftirliti.

4

Hugarró aðstandanda

Aðstandendur fá tilkynningar ef lyf eru ekki tekin.

Dosell appið - einfalt

Sem einstaklingur notar þú fyrst og fremst appið til að fylgjast með lyfjatöku, fá áminningar og sjá stöðu Dosell í rauntíma.

Rauntímayfirsýn

Sjáðu stöðu tækisins og næsta skammt á einfaldan hátt.

Áminningar og tilkynningar

Fáðu tilkynningar þegar kominn er tími á lyfjatöku eða ef lyfjaskammt er sleppt.

Lyfjatökusaga

Skoðaðu sögu yfir lyfjatöku og haltu utan um reglusemi til lengri tíma.

Einföld uppsetning

Tengdu appið við Dosell á örfáum mínútum og byrjaðu strax.

Einfalt að byrja með Dosell

1

Hafðu samband við Lyfju

Ræddu við starfsfólk Lyfju um Dosell og hvort lausnin henti þér eða þínum nánustu.

2

Lyfja útbýr lyfjaskömmtunina

Lyfin þín eru pökkuð í lyfjapoka með réttum skammti, dagsetningu og tíma.

3

Þú færð Dosell til leigu

Dosell er leigður hjá Lyfju og þú færð leiðbeiningar um uppsetningu og notkun.

4

Dosell er tilbúinn til notkunar

Settu lyfjaskömmtunarrúlluna í tækið og Dosell sér um að minna á og afhenda réttan lyfjapoka á réttum tíma.

Spurningar og svör

Hvað þarf til að nota Dosell?

Dosell þarf í grunninn aðeins rafmagn til að virka. Einnig þarf að sækja snjallsímaforrit sem virkar sem fjarstýring. Í Dosell er innbyggt SIM-kort og öll gagnanotkun er innifalin í mánaðargjaldi.

Hversu lengi endist Dosell án rafmagns?

Dosell getur virkað án rafmagns í allt að 48 klukkustundir.

Hvað kostar að nota Dosell?

Dosell er hagkvæm lausn í sínum flokki. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar um verð og útfærslur.

Hversu langan tíma tekur að setja inn nýja skammtarúllu?

Það tekur aðeins 3–5 mínútur að setja inn nýja skammtarúllu. Leiðbeiningar í bæði myndbandi og texta eru aðgengilegar í notendavænu appi.

Hvenær sendir Dosell viðvörun?

Dosell sendir viðvörun ef lyfjatöku er sleppt, ef rafmagn fer af, ef tækið er slökkt eða ef það missir samband við skýið af öðrum ástæðum. Að baki Dosell er öflugt viðvörunarkerfi sem gerir kleift að stilla tímasetningar og forgangsröðun viðvarana.

Hafðu samband

Hefur þú spurningar, athugasemdir eða áhuga á að leigja Dosell?

Vinsamlegast fylltu út eyðublaðið hér að neðan og við munum hafa samband við þig eins fljótt og auðið er.